Námskeið

Posted By: Kerfisstjóri on Mar 22, 2009 in Efnissíður

Svifvængjanámskeið

Hans_Blafjoll2Námskeið í svifvængjaflugi eru haldin snemma sumars á hverju ári.
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um svifvængjaflug almennt.

Kennt er skv. alþjóðlegum kennslustaðli, Parapro og er miðað við að útskrifa nemendur á Parapro 2 stigi, eða því sem næst. Kennd eru undirstöðuatriði svifvængjaflugs, beiting vængsins og fræðileg atriði á borð við veðurfræði, flugreglur ofl.  Reyndustu flugmenn Fisfélags Reykjavíkur munu annast kennsluna en umsjónarmaður námskeiðsins er Róbert Bragason, robert.bragason@gmail.com, sími 898 7771. Hægt er að senda póst og biðja um að fá senda áminningu þegar skráning á næstu námskeið er að hefjast.

Fyrirkomulag námskeiðsins verður sem hér segir:

Kennslan fer fram á kvöldin og um helgar.  Þegar vel viðrar eru verklegar æfingar utan dyra en annars er tíminn notaður til að fara í bóklegt efni.  Nemendur fá kennslubók sem stuðst verður við.  Gert er ráð fyrir því að verklegt nám taki 6-8 daga og bóklegt fjóra daga með prófi, miðað við kennslu á kvöldin.

Námskeiðið hefst í Mai (nánari dagsetning kynnt síðar) að Grund undir Úlfarsfelli.  Veður og vindar ráða miklu um tímasetningar.  Nemendur verða boðaðir í kennslu eftir veðurútliti.  Það er því ekki hægt að segja til um hvenær námskeiðinu lýkur.

Námskeiðsgjaldið er kr. 100.000,- og það þarf að greiða að fullu áður en kennsla hefst. Athygli er vakin á að flest stéttarfélög taka þátt í kostnaði félagsmanna sinna við námskeið sem þessi og getur styrkur numið allt að kr. 40.000,-  Innifalið í námskeiðsgjaldinu allur búnaður á meðan námskeið stendur yfir, félagsgjald í Fisfélagi Reykjavíkur sem aftur innifelur alþjóðlega slysatryggingu og kennslubókin ásamt DVD mynddisk er einnig innifalin.

Athugið að öryggi í svifvængjaflugi byggist á því að menn kunni réttu handtökin og ekki síður að meta aðstæður til flugs.  Þátttaka í námskeiði á borð við þau sem Fisfélag Reykjavíkur býður á hverju ári er nauðsynleg forsenda þess að menn geti stundað þetta skemmtilega sport á öruggan og skynsamlegan hátt.

leave a comment