Fræðsluerindi um staðbundið veður

Fræðsluerindi á vegum Hins íslenska náttúrufræðifélags.

„Staðbundið veður.”

Dr. Haraldur Ólafsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands og prófessor í veðurfræði við Háskóla Íslands, flytur erindi á vegum Hins íslenska náttúrufræðifélags. Erindið verður flutt mánudaginn 28. mars kl. 17:15 í stofu 132 í Öskju, Náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands. Aðgangur er öllum heimill og ókeypis.

Ágrip af erindi Dr. Haralds Ólafssonar.

„Með tilkomu öflugra reiknivéla og sjálfvirkra veðurathugana hefur á síðustu árum verið staðfest að breytileiki í veðri og veðurfari frá einum stað til annars er gríðarmikill. Á það jafnvel við þótt stutt sé milli staða. Leitast er við að kortleggja breytileikann með tölulegum aðferðum og í tengslum við þá vinnu kemur ýmislegt í ljós sem vegur að ríkjandi hugmyndum eða hugmyndaleysi um staðbundið veður. Þar má nefna samspil hafgolu og brekkuvinds, fallvinda og landgolu, úrkomuákefð, loftstíflur og vindrastir í grennd við fjöll. Síðast en ekki síst má nefna að aldagömul hugmynd um orsök hlýinda í hnjúkaþey sem ratað hefur í margar kennslubækur virðist á sandi reist.”

Haraldur Ólafsson er fæddur árið 1965. Hann lauk cand. mag. prófi í jarðeðlisfræði, stærðfræði og eðlisfræði við Háskólann í Osló 1984, cand. scient. prófi í veðurfræði við sama skóla árið 1991 og doktorsprófi við Háskóla Paul Sabatier í Toulouse í Frakklandi árið 1996. Haraldur starfaði um hríð á Veðurstofu Íslands við veðurspár og rannsóknir og var annar stofnenda Reiknistofu í veðurfræði. Hann hefur verið prófessor við Háskólann í Björgvin og er nú prófessor í veðurfræði við Háskóla Íslands.

Sjá nánar á vef HÍN (http://www.hin.is/)

Fyrir hönd stjórnar HÍN,
Ester Ýr
Fræðslustjóri HÍN