Posts by: HuldaB

Íslandsmót svifvængja og svifdreka, frestað til 6.ágúst

Posted By: HuldaB on Jul 04, 2011 in Fréttir

Mótanefnd hefur ákveðið að fella niður mánudag og þriðjudag  á þessu Íslandsmóti svifdreka og svifvængja. EN það þýðir að við getum notað varadagana (6-7 ágúst). Nýjar reglur FAI/CIVL leyfa að skráðir séu varadagar fyrir mót. Það er sérstaklega ætlað fyrir óviss veður eins og sýnir sig hér á Íslandi þessa dagana.   Glöggir félagar sem …

Nánar

Íslandsmót svifvængja og svifdreka

Posted By: HuldaB on Jun 26, 2011 in Svifvængir

Veðurspáin gerir ráð fyrir hvössum  vind og rigningu um helgina og mánudaginn um mest allt land. Það hefur því verið ákveðið að aflýsa svifvængjakeppni á laugardag og sunnudag. Um helgina verður ákveðið hvort fresta eigi mótinu alveg.   Svifdrekar eru að skoða að fara í Skagafjörðinn, ekki ákveðið endanlega.   Mótanefndin —————— Íslandsmót svifvængja og …

Nánar

Hafragrauturinn 2011 – úrslit

Posted By: HuldaB on Jun 05, 2011 in Fréttir

Galvalskir svifvængjaflugmenn láta ekki að sér hæða. „Smá“ rigning fyrripart dags sló okkur ekki út af laginu og mætti fjöldi manna á Hafragrautinn í dag. Yfir 20 þáttakendur voru í lendingarkeppninni og að venju var marga skemmtilega búninga að sjá. Ég treysti ég því að þeir sem tóku myndir deili þeim með okkur hinum.  Ég …

Nánar

Hafragrauturinn verður sunnudaginn 5. júní.

Posted By: HuldaB on Jun 03, 2011 in Fréttir

Dagskráin verður með hefðbundnum hætti. Mæting í Hafrafell um kl. 11.  Áætlað að fyrstu menn verði komnir í loftið kl. 12.  “Glugginn” verður opinn til kl. 15. en þá verður grillveisla og verðlaunaafhending.  Gefin verða stig bæði fyrir lendingu og búning!   Hlökkum til að sjá ykkur öll, í sumarskapi   Nefndin

Nánar

Hafragrauturinn 2011

Posted By: HuldaB on May 31, 2011 in Fréttir

Hafragrauturinn 2011  verður núna um helgina! Fylgist með hér, á fésbókinni og á skyldunni til að vita hvor dagurinn verður fyrir valinu. Hafragrautsnefndin óskar eftir 2-3 sálfboðaliðum til að sinna dómarastörfum. Tilvalið t.d. fyrir maka. Endilega látið mig vita ef þið um einhverja sem eru til í að taka þetta að sér. F.h. nefndarinnar,HuldaB

Nánar

Vorverkin í Hafrafelli – nýjustu fréttir

Posted By: HuldaB on May 18, 2011 in Fréttir

Þá hefur netið á toppi Hafrafells verið stækkað um nokkur hundruð fermetra. Enn er eftir að stækka netið á neðra svæðinu og færa net sem er uppá Úlfarsfelli. Stefnum að því að klára þetta um helgina og mun nánari tímasetning verða tilkynnt þegar nær dregur. Fylgist með!

Nánar

Vorverkin í Hafrafelli

Posted By: HuldaB on May 08, 2011 in Fréttir

Nú er unnið að því að bæta aðstöðuna í Hafrafelli, m.a. að þökuleggja upp á topp, grjóthreinsa og laga net. Það var hress hópur sem mætti þangað fyrr í dag, en örvæntið ekki þið sem misstuð af þessu! Til stendur að halda verkinu áfram á þriðjudags eða miðvikudagskvöld. Fylgist með á fésbókinni eða á ParaSkyldunni.

Nánar

Svif fundur, fimmtudaginn 5.maí kl. 20:00

Posted By: HuldaB on May 04, 2011 in Fundir

Venjubundinn félagsfundur verður að Grund annað kvöld kl.20:00. Fundarefni: 1. 1.maí mót úrslit 2. Tiltektar- og vinnudagur í/á Hafrafelli 3. Örugglega eitthvað fleira Sjáumst öll kát í upphafi sumars.

Nánar

Ljósmynda og myndbanda samkeppni Fisfélags Reykjavíkur 2011

Posted By: HuldaB on Apr 29, 2011 in Fréttir

  Við kynnum til leiks: Ljósmynda og myndbanda samkeppni Fisfélagsins 2011. Nánari upplýsingar um praktísk atriði er að finna hér neðar og á viðburðarsíðunum á fésbókinni.  

Nánar

1. maí mótið fyrsta mót sumarsins – first competition of the year

Posted By: HuldaB on Apr 28, 2011 in Fréttir

Það er komið að hinu árlega 1. maí móti Fisfélagsins. Oft eru lengstu flug ársins flogin á þessu móti, jafnvel þó veður sé ekki spennandi.   Reglurnar eru einfaldar. Mótsdagarnir eru 30. apríl og 1. maí (laugardagur og sunnudagur). Það má fljúga svifvæng eða svifdreka án vélarafls hvar sem er á Íslandi mótsdagana. Það má …

Nánar