Helstu flugstaðir í nágrenni Reykjavíkur eru Úlfarsfell og Hafrafell. Vinsælt er að ganga á Úlfarsfell og ættu margir Reykvíkingar og nærsveitamenn að vera því kunnugir. Útsýni þaðan yfir höfuðborgina er stórkostlegt og á góðum degi er þar fjöldi manns á ferð. Úlfarsfellið er u.þ.b. 270 metra hátt.
Hafrafell stendur innan við Úlfarsfell, við Hafravatnið. Hafrafell er u.þ.b. 150 metra hátt og er það bratt fjall. Aðstæður til flugs eru góðar þrátt fyrir litla hæð, þar sem Úlfarsfellið skýlir því fyrir hafgolunni og myndast ákjósanleg skilyrði til myndunar hitauppstreymis.
Helgafell stendur í Mosfellsdal og er gjarnan notað í austlægari áttum, oft á haustin.
Einnig er flogið í kömbum við Hveragerði, Ingólfsfjalli og Bláfjöllum. Allt eftir aðstæðum hverju sinni.Vegir eru upp á alla flugstaði svo aðgengi er hér gott, ólíkt mörgum stöðum erlendis.
—————–
Í loggbók svifvængja og svifdrekamanna eru skráð öll flug. Þar með eru skráðir allir flugtaksstaðir sem eru notaðir í skráðum flugum. Þannig hefur safnast upp gagnasafn af flugstöðum. Fletta má upp flugstöðunum í loggbókinni eins og þeir koma fyrir í töflunni hér að neðan.
Eins má skoða alla flugstaði á Íslandi á korti eða loftmynd með því að smella hér.
Margir staðir hafa GPS hnitin skráð. Græni hringurinn sýnir hvaða vindáttir eru heppilegar fyrir viðkomandi flugstað. Ef smellt er á nafn staðarins, koma fram nánari upplýsingar um staðinn.
| Iceland | Ármannsfell | Bakvið þjónustumiðstöðina á Þingvöllum, Kaldárdals leiðin | |||
| Iceland | Bugsmúli, Gamlavík | Fjall alveg við sjóinn, Gamlavík er næsta vík við Ólafsvík | |||
| Iceland | Festarfjall Grindavík | Festarfjall er rétt austur af Grindavík Fjallið er sjávarsorfið í suðurátt og þverhípt niður í sjó.”Takeoff-ið” vestan megin, rétt ofan við bílastæðið og vísar að Grindavík. Fólk þarf að gæta sín að vera þarna ekki í of veikum aðstæðum (ekki undir 2ms. mælt á takeoffinu. Þá er ekki víst að þið náið ekki inn til lendingar uppá klettavegginn sem heitir Festi. Ef illa fer og einhver missir flugið niður fyrir klettana þá er smá fjara neðst undir klettunum á fjöru,en þar þarf nánast að punktlenda. Möguleikar eru á innlandsflugi frá fjallinu. | |||
| Iceland | Hvaleyrar boltavöllur | Fótboltavöllurinn er á milli Hvaleyrarvatns og flugmódelflugvallar Þyts í Hafnarfirði. Völlurinn er einstaklega sléttur og auðveldur fyrir mótorflug PPG. | |||
| Iceland | Vaðlaheiði (efri) | N 65° 43′ 33” W 18° 0′ 56” | Efri flugtakstaður á Vaðlaheiðinni. Þá er labbað frá þeim neðri upp á næstu sillu þar sem er önnur varð og þar er farið í loftið. Flugtakstaðurinn er miklu línuvænni en sá neðri auk þess sem hérna kemst maður strax í meiri bratta. | ||
| Iceland | Austurland | Egilsstaðir, Fjarðarheiði, skíðalyfta | Fjarðarheiðin er á milli Egilsstaða og Seyðisfjarðar. Þetta “take off” er hlíðin fyrir ofan Egilsstaði þar sem skíðalyftan er. Hentar fyrir vestan átt, ef sólin skín er hafgolan fljót að koma inn og þá blæs hann af norðan inn dalinn. Þá blæs meðfram fjallinu og það þarf að fara lengra aftir hryggnum framhjá lyftunni til að taka almennilega á loft. Hlíðin er í stöllum og það þarf að gæta að rotorum sem gætu myndast. | ||
| Iceland | Katlabrekkur | Katlabrekkur | 10 Km löng hlíð við Herdísarvík. | ||
| Iceland | Laugarvatn | Laugarvatn | Gott er að fara upp að skíðalyftunni á Lyngdalsheiði (Gjábakka) og ganga uppaf henni eins hátt og menn vilja. | ||
| Iceland | Melgerðismelar | Akureyri | Eingöngu er hægt að toga í loftið á þessum stað. Only for towing. | ||
| Iceland | Norðurland | Fálkafell | N 65° 39′ 23” W 18° 8′ 37” | Fálkafell er rétt fyrir ofan Akureyri og þar er mjög gott að fljúga í austanátt. Oftast er lent á golfvellinu og þar hefur okkur alltaf verði tekið vel. Fálkafell is a 1km. from Akureyri. It is very good to fly in east wind and land on the Golf course | |
| Iceland | Norðurland | Fnjóskárdalur | N 65° 33′ 30” W 17° 39′ 6” | Frábær flugstaður þegar veðrið er gott gefur möguleika á löngu flugi, passið ykkur bara á bylgjunum |
|
| Iceland | Norðurland | Húsavíkurfjall | N 66° 2′ 42” W 17° 17′ 39” | Fólksbílafær akvegur upp að útsýnisskífu á fjallinu. | |
| Iceland | Norðurland | Nefið | N 65° 35′ 5” W 18° 0′ 20” | Þetta er ágætis flugstaður á nefinu milli Garðsárdal og Eyjafjarðar. Gott takeoff og milljón tún út um allt til að lenda á. Galli er að uppstreymið er ekki mikið þar sem vindurinn leytar inn dalina. Fín 45mín ganga upp fjallið |
|
| Iceland | Norðurland | siglufirde | siglo lig sirka ie og haltima fra akureiri | ||
| Iceland | Norðurland | Siglufjörður | N 66° 0′ 0” W 18° 44′ 0” | Hyrna sem stendur innst í Siglufirði. Hætta á ókyrrð frá fjallgarðinum í kring. Mjög oft þoka. | |
| Iceland | Norðurland | Vaðlaheiði (neðri) | Smábrekka þar sem gamlivegurinn fer yfir vaðlaheiðina. Flugtakstaður er við hliðina á vörðunni sem þar er. | ||
| Iceland | Norðurland | Vindheimamelar | Togbraut Svifvængjafélags Akureyrar. | ||
| Iceland | Reykjavík | Bláfjöll | N 63° 59′ 1” W 21° 37′ 0” | Farið er inn á skíðasvæðið og keyrt áfram nær fjallinu. Það er slóði upp að endurvarpsstöð sem er á hæsta toppnum. Best er að fara í loftið á öxlinni þar sem vegurinn kemur upp á öxlina. Á slóðinni að ofan er vefmyndavél af svæðinu á veturna. | |
| Iceland | Reykjavík | Grund (Clubhouse) | N 64° 8′ 14” W 21° 44′ 57” | Félagsheimili Fisfélags Reykjavíkur Clubhouse of the HG/PG/Ultralight club | |
| Iceland | Reykjavík | Hafrafell | N 64° 8′ 15” W 21° 39′ 11” | Local club site. Thermals, seabreeze waves. Popular for students and advanced HG and PG. (I take the liberty of adding the following, even though I barely know the place, while I upload the picture anyway. Peter Loeskow, Sweden) Hafrafell is situated by the lake Hafravatn, the road to which passes by the club house. The luxurious |
|
| Iceland | Reykjavík | Helgafell | N 64° 10′ 3” W 21° 38′ 3” | Vindátt niður Mosfellsdalinn. Oft byljguhreyfing og/eða ókyrrð af Esjunni. Lendingarsvæði er á túni norðan við veginn. Erfitt að lenda annarsstaðar vegna girðinga, skurða, vega og raflína. Svifhlífar geta þó lent beint fyrir neðan flugtaksstað. | |
| Iceland | Reykjavík | Hryggur vestan við Sandskeið | Brún sem liggur samsíða suðurlandsvegi vestan við sandskeið. | ||
| Iceland | Reykjavík | Mattahorn við Vífilfell | N 64° 2′ 40” W 21° 31′ 56” | Mattahorn er hryggur sem var nafnlaus en getur allteins kallast Mattahorn. Þessi hryggur gengur út frá Vifilfelli í NE. Að sögn hafa svifdrekamenn notað staðinn í fyrndinni. Matta leyst svo vel á staðinn til að fljúga í norðna og austan átt að hann er búinn að grjóthreynsa blett til að leggja vænginn niðurá. Það er hægt að keyra bæði í gegnum gryfjurnar nær Sandskeiði eða fara framhjá Bolöldu-mótorkrossbrautinn og áður en ekið er upp brekkuna inní Jósepsdal þá er beygt til hægri og að nýju malarnámi. Þaðan er ekki nema 47 metrar uppá Takeoff-ið. Það er alstaðar hægt að lenda þarna í kring. Malargryfjurnar ættu að gefa gott lyft í sól. | |
| Iceland | Reykjavík | Sandskeið | Flugvöllur Svifflugumanna | ||
| Iceland | Reykjavík | Skálafell | N 64° 14′ 3” W 21° 28′ 0” | Á toppnum við endurvarpsstöðina. Í SA átt og S er algengt að flogið sé meðfram Esjunni út á Kjalarnes. Í N átt hefur einnig verið flogið út á Reykjanes Vísun á vefmyndavél er að ofan. | |
| Iceland | Reykjavík | Úlfarsfell (austur hábungan) | N 64° 8′ 59” W 21° 42′ 29” | Hábungan í austur er yfir Skyggni. Ekki mikið notað vegna þess að í austanátt er að jafnaði rigning. Lítið pláss til að athafna sig á flugtakssvæðinu. | |
| Iceland | Reykjavík | Úlfarsfell (norðaustur) | N 64° 9′ 0” W 21° 42′ 0” | Norðaustan á Úlfarfelli Algengt að ókyrrð frá Esju sé í þessari vindátt. Flug út á Reykjanes hafa venjulega verið farin af þessum flugstað | |
| Iceland | Reykjavík | Úlfarsfell Norð-Vestur | Gott er að taka af uppá svifdrekaflötinni og einnig af netinu sem er neðar í NV átt. Ef vindur er stífur er ekki gott að taka af of nærri klettabrúninni vegna rótora. Í hitum getur myndast nokkuð sterk termik í hlíðunum innan við skóginn. Svæðið allt getur verið varasamt óvönum, þar eru rafmagnslínur, skógur og svo er vegurinn og ljósastauranir. | ||
| Iceland | Reykjavík | Úlfarsfell S-N | N 64° 9′ 0” W 21° 43′ 0” | Flugtak er frá Suðri til norðurs á hábungunni. Norðaustur og Austur flugtak eru sér flugstaðir. Lengsta flug á Íslandi 92 km var flogið frá þessum stað. | |
| Iceland | Reykjavík | Úlfarsmelur | N 64° 8′ 35” W 21° 44′ 21” | Gróin melur innaf Félagsheimilinu okkar(Grund) Mjög fínn staður fyrir Mótorflug (PPG)og “groundhandling” æfingar meðan blæs úr einhverri átt. Ég byrjaði að nota svæðið af þvi það hélst nokkuð þurrt framá vetur og blés af þvi snjó. Þetta er nokkuð afsíðis og er góður friður fyrir forvitnum vegfarendum og fisflugvélum. Ég fór þarna í vetur og hreinsaði svæðið af jarðvegsúrgangi og rusli sem reykvískar subbur drituðu niður af því sorpa hefur verið lokuð. Ég hef hug á að setja “Streemer” á stöng svo þeir sem áhuga hafa að æfa sig í friði hafi meiri not af staðnum. Mynfin er tekin í feb. þannig að hún er nokkuð dökk. Sit betri mynd við færi. | |
| Iceland | Reykjavík | Vífilfell Sandskeið | N 64° 2′ 16” W 21° 33′ 17” | Fjallið er móbergs fjall og er hvergi hægt að leggja svifvæng niður á fjallinu sjálfu. Línur og dúkur húkkast allsstaða í. Hægt er að ganga á hrygginn sem liggur í norður og finna staði á melum til að taka í loftið í NV og í A yfir námurnar. Einnig er gamalt svidreka lægi (Sjá Mattahorn) við Þórishamar sem er núna er náma og er óðum að hverfa. Nokkuð er um svartar námur og bletti sem gefa tilefni til termiks. Svifflugurnar af Sandskeiðinu nota fjallið til að lyfta sér í hæðir og þurfa því allir að vera klárir á umferðareglunum. Tíðnin fyrir svifflugu traffik er 119.9MHz. | |
| Iceland | Reykjavík | Æsustaðafell | N 64° 10′ 13” W 21° 37′ 21” | Fell austur af Helgafelli um 500 metra frá. | |
| Iceland | Reykjavík | Æsustaðafjall í Mosfellssveit | Æsustaðarfell, staðsett í Mosfellssveit | ||
| Iceland | Sandskeiði | Sandfell | N 64° 2′ 20” W 21° 37′ 9” | Við Sandskeið. Kantur sem liggur frá Bláfjöllum að Lögbergi | |
| Iceland | Sandskeiði | Tvísteinar (Hálfvitinn) | Flatlendi í kringum móbergskletta sem hallar frá í ýmsar áttir. Staðurinn hefur verið notaður til að kenna grándl (Ground handling) á námskeiðum. Iðulega kallað “Hálfvitinn” þar sem þarna er viti er hann er lítill og því einungis hálfviti. Gott er að æfa mótorflugtök, aðflug og lendingar þarna. Samt þarf að bera óttablandna virðingu fyrir bylgjum af fjöllunum sem getur orðið vart á svæðininu í SA-S-SV áttum. | ||
| Iceland | Suðurland | Búrfell | N 64° 4′ 27” W 19° 50′ 0” | Highland XC super flying site. Black sand all around with high thermal activity. HG pilots have reached over 3000m in thermals. | |
| Iceland | Suðurland | Búrfell í Grímsnesi | N 64° 4′ 55” W 20° 56′ 46” | Nánast hægt að fara í loftið hvar sem er þar sem fjallið er hringlaga. Algengast að fara í S eða SW í attina að Grímsnesinu. | |
| Iceland | Suðurland | Ingólfsfjall | Set inn seinna | ||
| Iceland | Suðurland | Ingólfsfjall-suður | N 63° 57′ 48” W 21° 3′ 59” | Suðurendi Ingólfsfjalls. Farið í loftið á kanti sem gengið er uppá frá þjóðvegi 1 (við Kögunarhól). Einnig hægt að ganga alla leið upp á fjallið, en þá þurfa menn að vera tilbúnir að klifra mjög bratta hlíð. | |
| Iceland | Suðurland | Kálfstindar Lyngdalsheiði | Svæðið er mjög fallegt og gefur möguleika á góðum langflugum í hitum. Móbergið er vont að taka af á en ofna á Reyðarbarmi er nokkuð mosa vaxið. Hægt er að fljúga út með hryggnum vestanverðum og svo er hægt að vera inní dalnum allt utað Laugarvatni. Í sunnan áttum geta aðstæður orðið sterkar inní dalnum. Það er mjög fínt að fljúga mótor þarna auðvelt að taka af í grasivöxnum dalbotninum. | ||
| Iceland | Suðurland | Kambar | N 64° 0′ 1” W 21° 15′ 35” | Flugtak á klettabrún. Hægt að fara ofar, upp á bungu suðvestan við og þá er aflíðandi og hentar betur fyrir svifhlífar. Þar má einnig fara ef vindátt er sunnanstæðari. | |
| Iceland | Suðurland | Nesjavellir | N 64° 7′ 0” W 21° 15′ 3” | Flugtakstaður er rétt fyrir ofan bóndabæjinn | |
| Iceland | Suðurland | Pétursey á Sólheimasandi | Aftökur eru í snarbröttum en grösugum hlíðum.Uppá toppi er erfiðara að taka af vegna þess að þar er smágrýtt, flatt. Gróið og fallegt umhverfi að fljúga í, sandarnir gefa möguleika á “termiki” í sól. | ||
| Iceland | Suðurland | Reyðarbarmur Lyngdalsheiði | N 64° 12′ 43” W 20° 54′ 30” | Fjöll sem gefa mikla möguleikaá XC, sum fjöllin innar á hryggnium eru mun hærri t.d.666m og 826m. Mikið af dökku hrauni sem gefur termic í hita. | |
| Iceland | Suðurland | Vörðufell á Skeiðum | N 64° 3′ 30” W 20° 30′ 20” | það lætur ekki mikið yfir sér en hefur reynst vel á góðum termic-degi, sérstaklega í suðlægum áttum. Fallegt umhverfi. Mestahæð fjallsins er 391 en aftökustaðirnir eru mun neðar ca.130m. | |
| Iceland | Suðvesturland | Ármannsfell Þingvöllum | Ármannsfell er móbergsfjall og eru ekki mikið um gróin takeoff. Það getur verið vara samt að taka af, af klöppunum, línur húkkast í osfrv. Mosaþembur eru þó á sangli. Í vestur,suður áttir er gengið upp Fjárhúsamúla sem er uppaf Skógarhólum, aðstaða fyrir hestamenn (gæta þess að fæla ekki hesta, gott er að tala til þeirra áður en maður lendir) Annars er gott að lenda alstaðar á sléttum mosgrónu hrauninu. N-Austan megin eru sandar svo langt sem augað eigir. Bæði svifdrekar og paragliderar hafa flogið termik á góðum degi í fallinu. Ef fjallið dregur til sín kemur hafáttin inn frá Hvalfirði NW og úr norðri. | ||
| Iceland | Suðvesturland | Arnarstapi | Flugtakstaður er 9.1 km frá tjaldstæði Arnarstapa.Á Snæfellsnesi.Tekið er á loft sunnan meginn í skaganum | ||
| Iceland | Suðvesturland | Eilífdalur Meðalfelsdal | Það er einúngis hægt að taka af í norður og bara í Norður annað er alls ekki í boði á þessum stað vegna að þetta er mjög þraungur dalur og Skarðsheiðin beint á móti. | ||
| Iceland | Suðvesturland | Eilífsdalur Kjós | N 64° 15′ 54” W 21° 38′ 51” | Matti segir að það sé bara hægt að fljúga í norðanátt. Aðstæður geta orðið sterkar inní botninum því dalurinn er þröngur og mjór. Bylgja af Skarðsheiðinni getur magnað aðstæðurnar enn frekar þarna inni. | |
| Iceland | Suðvesturland | Esja | Hlíðin sem snýr að Kjalarnesi og liggur upp í Hvalfjörð að Tíðarskaði. Hægt er að taka af t.d. við Esjuberg í grónum hlíðum. Líka er auðvelt að fara uppað fjallinu við Vegavogina, rétt áður komið er að göngunum. Þar er labbað ca. 50-100metra uppí slakkan. Einnig er gaman að fljúga í skálinni sunnanmegin upp af Mógilsá. Eina sem ber að passa er að fljúga ekki hlé megin við rikjandi átt, þvi þá er maður dauður. | ||
| Iceland | Suðvesturland | Esja Kjós; Trana743; Skálfell 774 | N 64° 16′ 0” W 21° 30′ 0” | Keyrt er í gegnum sumarbústaðahverfi inn í átt að Skálafelli á jeppalóða sem endar í slóða yfir Svínaskarð. Stoppað er við ás sem heitir Múli og er hann genginn upp. Múli er sléttur, ávalur og víðast vel grónn. Mjög auðvelt er að “taka af” hvar sem er og í hvaða hæð sem er, eftir vindstyrk. Hægt að ná sterku “lifti” inní botni fjallanna. | |
| Iceland | Suðvesturland | Herdísarvík – Langabrekka | N 63° 52′ 51” W 21° 41′ 17” | Þetta er langur klettahryggur meðfram ströndinni ekki langt frá Strandakirkju. Í réttum áttum ætti að vera auðvelt að flúga fram og til baka með fjallgarðinum. Þetta er mjög fallegt svæði þar sem Herdísarvíkurhraun og Krísuvíkurhraun mætast. | |
| Iceland | Suðvesturland | Hlíðarendi | N 63° 53′ 31” W 21° 28′ 10” | Vegur vestanmegin við klettinn upp að endurvarpsstöðinni. Þar sem þarna er klettur er algengt að rotor sé á brúninni. Tekur aðeins sunnanátt. | |
| Iceland | Suðvesturland | Lágafell | N 64° 21′ 12” W 21° 57′ 11” | Farið Kaldadalsleið frá Þingvöllum og beygt inn á Eyfirðingabraut og er Lágafell á hægri hönd. | |
| Iceland | Suðvesturland | Midfell vid Thingvallavatn | Hægt að keyra upp á flugta stað | ||
| Iceland | Suðvesturland | Skarðsmýrarfjall | N 64° 3′ 6” W 21° 21′ 29” | Skarðsmýrarfjall er innaf og ofna við Hellisheiðavirkjun. Búið er að malbika veginn uppá fjallið vegna hitaveituboranna. Virkjunin er við Kolviðarhól og í Hellisskarði er veðurathuganastöð. ‘Takeoffin’ eru af veðurbörðum grýttum mel, sem er mosavaxinn á köflum. Möguleiki er að fljúg í norður í átt að Hengli, þar sem nóg er af móbergi og termik. Einnig er hægt að fljúga til suð-vesturs yfir háspennulínur og virkjunina og við góðar aðstæður er möguleiki að ná yfir í Stórameitil eða í Lambafell og þaðan í Blákoll og Vífilfell. | |
| Iceland | Vestfirðir | Arnarnes við Skutulsfjörð | N 66° 4′ 44” W 23° 4′ 44” | Here we surf the sea breaze, which is blowing undisturbed from the Atlantic ocean. we prefer 8-18knots, 320°-355°. On good days, it´s the never ending breaze surf ; ) with totally spectacular view. | |
| Iceland | Vestfirðir | Háabrún Tungudal Ísafirði | N 66° 3′ 44” W 23° 13′ 33” | Something with many many words to describe things. Atlantic sea breaze and thermals. u jeah baby!!! | |
| Iceland | Vestfirðir | Hornstrandir | N 66° 15′ 42” W 22° 5′ 7” | Hornstrandir | |
| Iceland | Vesturland | Bæjarfjall – Húsafelli | N 64° 41′ 30” W 20° 54′ 39” | Slóði upp á fjallið frá aðalveginum. | |
| Iceland | Vesturland | Grímsmúli | N 64° 42′ 32” W 21° 57′ 18” | Verður skráð síðar / later | |
| Iceland | Vesturland | Hvalfell Botnsdal Hvalfirði | Gengið er frá bílastæði eins og sé verið að fara skoða Glim. Farið er niður að Botnsánni þar sem gengið er í gegnum helliskútan og yfir ána á staurabrú með vír handriði. Uppá ásinn og tekið af þar í átt að sjónum í ca. 250m hæð. | ||
| Iceland | Vesturland | Lokufjall | Þetta er fjall rétt norðan við Esju. Ætti að vera best að fljúga í norðvestan átt. | ||
| Iceland | Vesturland | Raudholl, Hellissandi | Rauðhóll er 5-8000 ára gamall gígur. | ||
| Iceland | Vesturland | Stapafell | N 64° 46′ 20” W 23° 39′ 30” | Snæfellsnesið. Glæsilegt flugsvæði sem tekur hafgolu bæði að sunnan og norðanverðu. Hár fjallahryggur liggur til austurs frá Stapafelli. Mörg há og góð fjöll sem gefa mikla möguleika. | |
| Iceland | Vesturland | Strútur við Húsafell | N 64° 44′ 56” W 20° 40′ 54” | Strútur er í nágrenni við Húsafell í Borgarfirði |