Saga félagsins hófst formlega með auglýsingu
í Morgunblaðinu í september 1978. Stofnfundurinn var á Hótel Esju 10. september. Margir af stofnfélögum eru enn virkir í félaginu rúmum 30 árum síðar
Þetta þótti frekar nýstárlegt og fékk fundurinn því frekari kynningu í Morgunblaðinu.
Í pistlinum er meðal annars fjallað um fyrsta Íslandsmótið, en það var haldið í tengslum við sumarhátíð á Úlfljótsvatni 1978 sem nefnd var Rauðhetta.
Þar varð Hálfdán Ingólfsson Íslandsmeistari, en hann vann það sér til frægðar að vera fyrsti svifdreka-flugmaðurinn á Íslandi.
Hálfdán smíðaði sinn fyrsta svifdreka, en fyrirmyndin var wiskey auglýsing í tímariti sem sýndi m.a. svifdreka á flugi. Hann mældi allar lengdir eins nákvæmlega og unnt var og notaði flugmanninn sem viðmiðun til að hlutfalla allar lengdir. Þessi svifdreki er til enn og er í geymslu á Ísafirði.
.





