Námskeið
Svifvængjanámskeið
Námskeið í svifvængjaflugi eru haldin á hverju sumri.
Smelltu hér til að skrá þig á námskeið.
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um svifvængjaflug almennt.Kennt er skv. alþjóðlegum kennslustaðli, Parapro og er miðað við að útskrifa nemendur á Parapro 2 stigi, eða því sem næst. Kennd eru undirstöðuatriði svifvængjaflugs, beiting vængsins og fræðileg atriði á borð við veðurfræði, flugreglur ofl.
Fisfélag Reykjavíkur hefur haldið byrjenda námskeið í svifvængjaflugi á hverju sumri frá árinu 2000. Félagið leggur áherslu á að byggja upp íþróttina um land allt og hefur haldið námskeið á Húsavík, Seyðisfirði og í Vík í Mýrdal, auk Reykjavíkur. Fyrstu umsjónarmenn námskeiðanna voru fengnir erlendis frá, en íslandsvinurinn og heimsmeistarinn Bruce Goldsmith hélt hér fyrsta námskeiðið árið 2000. Árið 2007 tóku félagsmenn Fisfélags Reykjavíkur að annast kennsluna, en umsjónarmaður námskeiðsins á Íslandi er Þröstur Freyr. Hann tekur á móti fyrirspurnum í síma 780 6766.
Fyrirkomulag námskeiða er sem hér segir:
Reykjavík, lotunámskeið:
Námskeiðið er haldið á Hólmsheiði þar sem Fisfélagið er með góða aðstöðu. Veður og vindar ráða miklu um tímasetningar. Kennt er frá fyrstu helginni í maí, virka daga frá 16:00 en helgar frá 11:00 og fram á kvöld eins og veður leyfir út júní. Kennslusvæðið er Reykjavík og nágrenni. Kennt er eftir tékklista og námskeiði lýkur á 5-10 verklegum dögum á Vík.
Smelltu hér til að skoða Facebook viðburð námskeiðsins.
Vík í Mýrdal, lotunámskeið:
Námskeið er haldið á Vík í enda júní, ef næg þátttaka fæst. Kennt er í 5-10 daga lotu, hvenær sem er dags eða allan daginn og fram á kvöld eins og veður leyfir. Kennslusvæðið er Vík og nágrenni. Kennt er eftir tékklista og námskeiði lýkur á 5-10 dögum.
Námskeiðsgjaldið er kr. 135.000,- . Athygli er vakin á að flest stéttarfélög taka þátt í kostnaði félagsmanna sinna við námskeið sem þessi og getur styrkur numið allt að kr. 40.000,- Innifalið í námskeiðsgjaldinu er allur búnaður á meðan námskeið stendur yfir og félagsgjald í Fisfélag Reykjavíkur.
Smelltu hér til að skrá þig á námskeið.
Athugið að öryggi í svifvængjaflugi byggist á því að menn kunni réttu handtökin og ekki síður að meta aðstæður til flugs. Þátttaka í námskeiði á borð við þau sem Fisfélag Reykjavíkur býður á hverju ári er nauðsynleg forsenda þess að menn geti stundað þetta skemmtilega sport á öruggan og skynsamlegan hátt.