Ferðastyrkir ÍBR

ibr_logo

Fisfélag Reykjavíkur er aðili að Íþróttabandalagi Reykjavíkur. Vegna þess hafa félagar Fisfélagsins möguleika á að sækja um ferðastyrki á sum mót erlendis.
Reglugerð ÍBR um styrki til keppnisferða erlendis

Hægt er að sækja um styrki til ferða á Heimsmeistaramót, Heimsbikarkeppni, Evrópumeistaramót, Norðulandameistaramót, alþjóðleg mót landsliða, opinbera landsleiki, landskeppni, alþjóðleg stigamót (aðeins 3 efstu á styrkleikalista) og önnur þau mót sem stjórn ÍBR hefur samþykkt.

Aðeins er hægt að fá úthlutað styrk þrisvar á ári.

Ferlið við umsóknina er þannig

  1. Félagsmaður sendir upplýsingar um mót og kostnaðaráætlun til stjórnar Fisfélags Reykjavíkur(stjorn@fisflug.is)
  2. Stjórn sendir umsóknina áfram til ÍBR.
  3. Eftir mót skilar félagsmaður greiddum fargjaldareikningum eða flugmiðum frá Íslandi til keppnisstaðar til stjórnar Fisfélagsins sem sendir þær áfram til ÍBR
  4. ÍBR greiðir Fisfélagi Reykjavíkur styrkinn sem svo skilar honum til félagsmannsins.

Upphæð styrksins er 25.000kr frá 1.1.2016. Styrkir til þáttöku í Evrópumótum er þó 35.000kr.