Hvernig má kynnast fisflugi

Hvernig má kynnast fisflugi

Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér fisflug eru velkomnir á félagsfundi sem haldnir eru í félagsheimili Fisfélagsins á Hólmsheiðarvegi 139 eða Heiði eins og svæðið er kallað. 

Fylgjast þarf með boðun á fundina á vefsíðu félagsins.

Svifvængjafundir eru að öllu jöfnu haldnir fyrsta fimmtudag í mánuði.

Vélfisfundir eru að öllu jöfnu haldnir síðasta fimmtudag í hverjum mánuði.

Fundirnir eru boðaðir á með tölvupósti og með tilkynningu á vef félagsins og/eða Facbook síðum félagsins.