- This event has passed.
Aðalfundur FFR 18. febrúar kl 19:00 á Heiði
18/02/2021 @ 19:00 - 22:00
Aðalfundur Fisfélags Reykjavíkur – 2021
Haldinn á Heiði 18. feb kl 19:00
Dagskrá aðalfundar samkvæmt lögum félagsins
1. Formaður flytur skýrslu stjórnar
2. Gjaldkeri skýrir reikninga félagsins
3. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga félagsins
4. Reikningar bornir upp til samþykktar
5. Gjaldkeri kynnir fjárhagsáætlun næsta árs
6. Ákvörðun um félagsgjald
7. Tillögur teknar til meðferðar
8. Kosning formanns, gjaldkera, ritara og tveggja meðstjórnenda
9. Kosning fulltrúa á þing FMÍ
10. Skipan nefnda
11. Önnur mál.
Kosning formanns, gjaldkera, ritara, 2 meðstjórnenda og endurskoðanda
Jónas Sverrisson bíður sig fram til áframhaldandi setu formanns
Geir Björnsson bíður sig fram til áframhaldandi setu gjaldkera
Óli Öder bíður sig fram til áframhaldandi setu meðstjórnanda
Aníta Hafdís Björnsdóttir biður sig fram til meðstjórnanda
Þröstur Freyr Hauksson býður sig fram til stjórnarsetu
Sigurþór C Guðmundsson bíður sig fram sem endurskoðandi
Tillögur gjaldkera varðandi félagsgjald fyrir 2021
Lagt er til að félagsgjald verði 10.000 kr. eins og síðasta ár
Félagsmenn eru hvattir til þess að koma fram með tillögur sem bæta starfsemi félagsins eða stjórnun þess.
Einnig eru félagsmenn hvattir til að bjóða sig fram til starfa fyrir félagið t.d. í stjórn eða nefndir.
Stjórnin