Umferðarreglur svifvængja
Endrum og sinnum gerist það að einstakir svifvængjaflugmenn bera það upp að umferðarreglur í lofti séu ekki virtar sem skyldi. Það geta vitaskuld legið margskonar ástæður fyrir því en oftast eru þar á ferð nýliðar sem enn eru ekki alveg klárir á helstu umferðarreglum. Mest hefur borið á þessum umkvörtunum eftir flug í „soaring“ aðstæðum t.d. í Hafrafelli.
Þetta eru þó ekki einu aðstæðurnar sem krefjast þess að svifvængjaflugmenn kunni og virði reglur sem miða að því auka öryggi flugmanna þegar þeir deila loftrýminu með öðrum. Einnig kemur til flug í hitauppstreymi þar sem flugmenn nýta sér hitauppstreymisgeira eða „bólur“.
Síðast en ekki síst eru það svo umferðarreglur sem standa í samhengi við annarskonar loftför, s.s. mótordrifin loftför og atvinnuflug. Hér verður sjónum beint að umferðarreglum meðal svifvængja- og svifdrekaflugmanna. Öðrum reglum verða svo gerð skil í annari grein.
Nýliðun í svifvængjasportinu hefur aukist nokkuð síðustu ár. Það er af sem áður var að allir fimm svifvængjaflugmennirnir þekktust og gætu „soarað“ hafgoluna í Hafrafelli á sama tíma. Nú er fjöldinn orðinn slíkur að stundum er þröngt á þingi í léttum aðstæðum í Hafrafelli. Auk þess hefur verið komið upp virku starfi á landsbyggðinni þar sem flugmenn fljúga í litlum eða engum tengslum við flugmenn í bænum en hittast svo kannski stöku sinnum á flugi.
Í þessu ljósi er orðið mikilvægt að allir sem fljúga svifvængjum kunni og fari eftir umferðarreglum þegar flogið er innan um aðra svifvængjaflugmenn. Hér gefur að líta allar umferðarreglur sem í gildi eru hér á landi milli svifvængja- og svifdrekaflugmanna og verður greinin uppfærð ef þurfa þykir í framtíðinni.
Almennt
Hangflug við fjallshrygg (e. ridge soaring)
Hitauppstreymisflug (e. thermalling)
Sérstakar kringumstæður
Þegar svifvængjaflugmenn ferðast til annara landa er ráðlegt að kynna sér reglur viðkomandi lands sérstaklega. Oftast nær gilda þessar sömu reglur en oft geta gilt fleiri reglur auk þess sem sumstaðar gilda kurteisisvenjur sem gott er að vera meðvitaður um.
Hvað sem öllum reglum líður skal ávalt hafa skynsemi með í för. Það er lítil huggun í því að hafa verið í rétti þegar slys ber að garði. Við raunverulegar aðstæður geta komið upp tilviki þar sem álitamál er hvor á réttinn séð frá þeim sem í hlut eiga. Einum flugmanni getur t.d. fundist hann nægjanlega hátt yfir hinum eða það langt frá honum, þegar þeir mætast við hrygg, að mætingarreglur eigi ekki við. Hinn flugmaðurinn kann að sjá þetta í öðru ljósi.
Þá er ein óskrifuð regla sem undirrituðum finnst að allir flugmenn ættu að hafa í hávegum; hún er sú að sýna byrjendum sérstaka tillitssemi og skilning á meðan þeir eru að taka sín fyrstu skref í fluginu.
Látum reglurnar þjóna okkur en ekki vera tilefni til óþarfa leiðinda. Langoftast er nóg pláss fyrir okkur öll.
Róbert Bragason