SPOT er lítil og sniðug græja, einskonar ferða-neyðarsendir, sem gagnast fisflugmönnum einkar vel. Þessi búnaður sem er á stærð við GPS ferðatæki er bæði einföld og þægilegur í notkun og ætti ekki að reynast neinum flókið fyrirbæri.
Undirritaður kynnti sér Spot tækið og hér er smá skýrsla ykkur hinum til upplýsingar.
Kostir:
- Sendir út neyðarboð og/eða boð um að allt sé í lagi ásamt nákvæmri GPS staðsetningu með einni skipun.
- Hóflega verðlagt, passlega stórt, áberandi og létt meðförum.
- Nýtist jafnt á flugi sem í gönguferðum, vélsleðaferðum, siglingum, o.s.frv.
- Góð rafhlöðuending.
Gallar:
- Takmörkað viðmót á tæki. Ljósmerki krefjast þess að viðkomandi þekki vel á tækið.
- Þarf að vera staðsett þar sem það sér himinn vel, m.ö.o. dugar ekki að koma fyrir hvar sem er í vélinni.
- 148 dollara áskrift á ári, ef notandi vill nota alla möguleika tækisins.
Grunnvirkni SPOT tækisins er neyðarsendir. Tækið eitt og sér getur sent út neyðarboð með því einu að halda inni neyðarhnappnum í nokkrar sekúndur. Við þetta ferli eru neyðarboðin send stjórnstöð í Bandaríkjunum þar sem þau eru svo áframsend til viðkomandi björgunarsveitar eða lögreglu. Boðin innihalda upplýsingar um númer tækis, sem svo er tengt við eigandaupplýsingar, og nákvæma GPS staðsetningu.
Kaupi viðkomandi notandi 99$ árs áskrift í gegnum vefsíðu SPOT, er hægt að fylgjast náið með staðsetningarboðum viðkomandi á Google Maps. Þannig geta aðstandendur fengið boð í hvert skipti sem vél t.d. lendir eða viðkomandi flugmaður nær á áfangastað. Fyrir auka 49$ á ári getur tækið svo sent boð á 10 mínútna fresti og sýnt feril á Google Maps þeim sem aðgang hafa.
SPOT tækið fæst hjá Toyota umboðinu á Selfossi og allar nánari upplýsingar gefur starfsmaður umboðsins og fisflugmaðurinn Þórir Tryggvason (TF-170) í síma 480 8000. Verðið er (þegar þetta er ritað) ennþá á “gamla genginu”, 29.900 og félagsmenn fá að auki sérstakan aukaafslátt.