Það eru ekki bara fis sem venja komur sínar á Grund og það var ekki slæmur gestur sem heimsótti okkur á fimmtudagskvöldið síðasta, en þar var á ferðinni Einar Dagbjartsson, atvinnuflugmaður og Þytsmeðlimur á einni flugvéla klúbbsins, TF-KAF. KAF er af tegundinni Cessna 170, árgerð 1952. Þrátt fyrir háan aldur (vélarinnar) tókst flugmanni hennar auðveldlega að lenda og fljúga burt vélinni af brautinni okkar. Þökkum við Einari fyrir komuna. Sjá myndband með því að smella á “nánar”.
{youtube}kRWOkbuXQgI{/youtube}