Í dag 3. september er 90 ára afmæli flugs á Íslandi. Það var 3. september 1919 sem fyrsta flug var flogið á Íslandi, í Vatnsmýrinni í Reykjavík, Alveg frá upphafi hefur Vatnsmýrin verið vagga flugsins og fóstrað þróun og eflingu flugsins.
Fréttir í dagblöðum lýsa tilfinningum fólks á þessum tíma með ljóðrænum hætti þegar það verður vitni af þessum stóra atburði í samgöngumálum Íslands. Allt frá upphafi flugs hefur flug verið Íslendingum afar mikilvægt, enda landið eyja sem er einangruð frá öðrum löndum með miklum hafsvæðum. Eins hefur dreifð byggð á landinu kallað notið mikils af fluginu bæði í samgöngum, flutningum og öryggismálum. Flugið er ævintýri líkast og finna bæði flugmenn og farþegar oft þessa ljóðrænu tilfinningar enn þann dag í dag. Áhugaflugmenn eru úr öllum stéttum þjóðfélagsins og fljúga sér og farþegum til mikillar ánægju.
Meðfylgjandi eru greinar nokkurra dagblaða sem eðlilega fjölluðu um málið.