Félagsfundur 25. febrúar

Sælir félagar og annað áhugafólk um fisflug

Ég boða til fundar í félaginu annað kvöld, 25. febrúar 2010 kl. 20:00 að Grund við Úlfarsfell
Dagskrá:
  • Stutt bíómynd
  • Kynning á GPS/GSM staðsetningarbúnaði – Nokkrar útfærslur (Ágúst)
  • Kynning á GPS/GSM staðsetningarbúnaði – SPOT o.fl. (Frosti)
  • Staða framkvæmdamála á Hólmsheiðinni (Sigurjón / Siggi)
  • Almenn skemmtiatriði í boði þátttakenda, eins og venjulega
Allt áhugafólk um fisflug velkomið á fundinn
Siggi (gjaldkeri)