Hæ hó öll,
Minni á félagsfund að Grund fimmtudagskvöldið 1.7.2010. kl. 20:00.
Væntanlegt efni fundarins verður:
Farið verður yfir óhapp/slys erlends ferðamanns sem varð í Skagafirði fyrir norðan á sunnudag. Hugsanlega farið eitthvað í slysaskýrslur almennt, nánari upplýsingar verða á fundinum.
Væntanlega eitthvað rætt um hið frestaða HafraGrauts-mót sem átti að vera um síðustu helgi en er planað á laugardaginn 3.7.2010. nk.
Hugsanlega einhverjar videomyndir líka, ef veður leyfir :-Þ
Svo er aldrei að vita nema einhver viðurkenning verði afhent 🙂
Sjáumst hress
fh. Stjórnar,
Kingo