Íslandsmót í vélflugi verður haldið 18. september 2010 frá Selfoss flugvelli.
Þetta er mjög skemmtileg keppni þar sem reynir á hæfni flugmana og aðstoðarmanna að fljúga þraut með nákvæmri tímasetningu og þekkja myndir á leiðinni, auk nákvæmnislendinga í lokin.
Góðar upplýsingar um eldri keppni með leiðbeiningum er að sjá á vef Flugmálafélags Íslands www.flugmal.is
Undanfarin ár hafa nokkur fis tekið þátt í keppninni og náð verðlaunasæti.
Skráðið ykkur sem fyrst (sjá vef Flugmálafélagsins)