Svif fundur verður fimmtudagskvöldið 7. apríl kl. 20.00 að Grund.
Ýmislegt áhugavert verður á dagskrá og gert ráð fyrir uppbyggilegu og áhugaverðum umræðum.
– Skírteinamál svifvængja og svifdrekamanna
Hvaða skírteini gilda á Íslandi og hvað gildir erlendis og hvaða skírteini þarf á alþjóðlegum mótum
Alþjóðleg þjálfunarkerfi FAI, Parapro og Safepro
– Kennsla á svifdreka og svifvængi
Skipulag og framkvæmd byrjendanámskeiða
– Öryggisnámskeið svifvængja (SIV)
Námskeið erlendis og á Íslandi
– Togbúnaður
Fyrir flugmenn og á námskeiðum
– Mót sumarsins
– Önnur mál
Stjórnin