Við kynnum til leiks: Ljósmynda og myndbanda samkeppni Fisfélagsins 2011. Nánari upplýsingar um praktísk atriði er að finna hér neðar og á viðburðarsíðunum á fésbókinni.
Ljósmyndir
Myndirnar skal taka á tímabilinu 30. apríl – 30. september 2011
Senda inn fyrir 5. október 2011.
Reglur
· Hverjir geta tekið þátt?
o Allir meðlimir Fisfélags Reykjavíkur geta sent inn mynd í keppnina
o Ef ljósmyndari er ekki meðlimur FR, þarf meðlimur FR að hafa heimild til að nota myndina (t.d. tekin af maka eða góðum vin)
· Hvernig tekur þú þátt
o Á hópsíðu Fisfélagsins á fésbókinni hefur verið búinn til viðburður, skal setja myndina inn á vegg viðburðarins, gefa henni heiti og taka fram hver ljósmyndarinn er.
§ Dæmi: gaman saman: Hulda Björk Þóroddsdóttir
Einnig þarf að senda myndirnar á jpeg –formi til vidburdir@fisflug.is
· Efni þeirra skal tengjast starfsemi félagsins
· Hver þáttakandi má senda inn eins margar myndir og hann vill
o Ef myndirnar þátttakakanda eru fleiri en 5, þá þarf hann í lok tímabilsins að velja 5 myndir sem keppa til úrslita.
· Með þátttöku í keppninni samþykkir þáttakandi að Fisfélag Reykjavíkur megi nota myndirnar á vefum félagsins og í kynningarefni og fréttir tengdar félaginu, félagsmönnum eða flugsportunum.
Kosning
· Meðlimir hópsins á fésbókinni geta kosið með að „líka við“myndirnar. Sú mynd sem flestum líkar við vinnur í kosningunni.
Úrslit verðlaun
· Kosningin gildir 50% á móti vali dómnefndar.
· Úrslit verða tilkynnt á vertíðarslúttinu
o Þá verður líka sýnt myndband sem gert er úr öllum myndunum sem tóku þátt.
· Verðlaun verða veitt fyrir 1 -3 sæti.
Myndbönd
Tímabil
Myndefnið má vera frá tímabilinu 30. apríl – 30. september 2011
Senda inn tilbúin mynbönd fyrir 5. október 2011.
Reglur
· Hverjir geta tekið þátt?
o Allir meðlimir Fisfélags Reykjavíkur geta sent inn myndband í keppnina
§ Sem þeir hafa tekið
· Hvernig tekur þú þátt
o Flestir eru með vimeo eða youtube svæði þar sem þeir geta birt myndbandið
o Á hópsíðu Fisfélagsins á fésbókinni hefur verið búinn til viðburður, skal setja krækju á myndbandið inn á vegg viðburðarins.
§ Hvetjum svifvængjaflugmenn á vimeo til að skrá sig í hópinn Paragliding Iceland og setja myndbandið þar inn
§ Hvetjum fisflugmenn til að búa til álíka hóp á vimeo ef hann er ekki nú þegar til
o senda link til vidburdir@fisflug.is
· Efni myndbandsins skal tengjast starfsemi félagsins
· Hver þáttakandi má senda inn inn eins mörg myndbönd og hann vill
o Ef myndbönd þátttakakanda eru fleiri en 5, þá þarf hann í lok tímabilsins að velja 5 myndbönd sem keppa til úrslita.
· Hvert myndband má vera hámark 5 mín. að lengd
· Með þátttöku í keppninni samþykkir þáttakandi að Fisfélag Reykjavíkur megi nota myndefnið á vefum félagsins og í kynningarefni og fréttir tengdar félaginu, félagsmönnum eða flugsportunum.
Kosning
· Meðlimir hópsins á fésbókinni geta kosið með að „líka við“myndböndin. Það myndband sem flestum líkar við vinnur í kostningunni.
Úrslit verðlaun
· Kosningin gildir 50% á móti vali dómnefndar
· Úrslit verða tilkynnt á vertíðarslúttinu
o Þá verður líka sýnd þau 3 myndbönd sem hljóta verðlaun.
· Verðlaun verða veitt fyrir 1 – 3 sæti
————–
fyrirspurnir má senda til huldabt@gmail.com