Galvalskir svifvængjaflugmenn láta ekki að sér hæða. „Smá“ rigning fyrripart dags sló okkur ekki út af laginu og mætti fjöldi manna á Hafragrautinn í dag. Yfir 20 þáttakendur voru í lendingarkeppninni og að venju var marga skemmtilega búninga að sjá. Ég treysti ég því að þeir sem tóku myndir deili þeim með okkur hinum. Ég vil nota tækifærið og mynna á ljósmynda og myndbanda-samkeppni félagsins.
Stöð 2 mætti á svæðið og birtist umfjöllun þeirra í kvöldfréttatímanum. Klippuna má sjá hér:
Sérstakar þakkir vil ég færa Sigga „kjúlla“ sem reddaði kjötinu á grillið sem og Agli og Valda sem lánuðu okkur grillin sín. Fjölmargir aðrir lögðu hönd á plóg og einnig var ánægjulegt að sjá hvað menn voru hjálpfúsir á flugtakssvæðunum.
Ég þakka ykkur öllum kærlega fyrir vel heppnaðan Hafragraut!
Úrslit:
1. sæti Szczepan Pawluszek lenti aðeins 30cm frá vatnsblöðrunni
2. sæti Guðbjartur Rúnarsson lenti 123cm frá vatnsblöðrunni
3. sæti Henryk Paciejewski lenti 150cm frá vatnsblöðrunni, á paramotor
Samúel Alexandersson fékk verðlaun fyrir besta búninginn, en hann mætti sem ástarengillinn Amor og skaut ástarörvum sínum að viðstöddum.