Arnar, Bjartmar og Gummi í Fjallateyminu gerðu sér afar lítið fyrir í vetur og klifruðu uppá Kirkjufell og svifu þaðan niður á svifvængjum!
Þetta gerðu þeir í ansi hressandi aðstæðum með þættinum Úti á RÚV, þegar þáttastjórnendur voru að undirbúa för þangað upp með Baltasar Kormák leikstjóra. Ekki laust við að það örli á öfund þáttastjórnenda við að sjá þá kappa stytta sér leið niður af fjallinu 🙂
Þátturinn er aðgengilegur hér á vef RÚV til 5. júní 2018. Innskotið byrjar á mín. 15:15.