Þriðji þáttur af “Skýjum ofar” var sýndur í kvöld og mátti þar sjá skemmtilega umfjöllun um heimasmíð hjá Ingó listflugmanni (betur þekktur af TOY-inu) og einnig af betrumbótavinnu Guðna flugkappa úr Mosó. Einnig var farið í flugferð með reynsluboltanum Einari Dagbjartssyni þar sem hann lenti í Grindavík, á flugmódelvelli Þyts og auðvitað á Sléttunni og Grund. Smelltu á nánar til að horfa á þáttinn.
Tvísmelltu á myndbandið til að horfa á það í fullum skjá. ESC færir þig aftur til baka.