Loftferðasamningur milli Tyrklands og Íslands

icelandairthota

icelandairthotaLoftferðasamningur milli Tyrklands og Íslands var áritaður í gær í utanríkisráðuneytinu. Þetta er fyrsti loftferðasamningur landanna en Tyrkland er meðal þeirra ríkja sem Ísland hefur átt í viðræðum við að undanförnu, að því er greint er frá í tilkynningu utanríkisráðuneytisins. „Samningurinn heimilar áætlunarflug milli landanna. Fyrir hönd Tyrklands áritaði samninginn Haydar Yalcin, aðstoðarframkvæmdastjóri Flugmálastjórnar Tyrklands. Einar Gunnarsson, skrifstofustjóri skrifstofu viðskiptasamninga í utanríkisráðuneytinu og formaður íslensku samninganefndarinnar, áritaði samninginn fyrir hönd Íslands. Í samninganefndinni voru auk hans og Maríu Erlu Marelsdóttuir, sendiráðnautur frá utanríkisráðuneytinu þau Karl Alvarsson skrifstofustjóri og Ástríður Scheving Thorsteinsson lögfræðingur frá samgönguráðuneytinu, Jóhanna Helga Halldórsdóttir lögfræðingur frá Flugmálastjórn, Ársæll Harðarson frá Icelandair, Hrafn Þorgeirsson frá Primera Air og Sigfús Ólafsson, fulltrúi Loftleiða Icelandic.

Ekki er talið að fisflugmenn geti nýtt sér þennan samning á nokkurn einasta hátt.  Fréttin er bara til marks um hve fábrotið efni berst ritstjórninni og ætti að vera hvatning til þeirra sem sportið stunda að senda inn fréttir og greinar.