Fréttir af WAG (dagur 3)

allt_tengt_fyrsta_prufuflugid

allt_tengt_fyrsta_prufuflugidTíminn líður í Torino eins og annarsstaðar og nú er staðan að búið er að setja bremsur á vélina, festa dúkinn á skrokkinn og strekkja.  Einnig hafa allir stýrifletir verið settir á og tengdir.  Því má segja að vélin sé orðin svifhæf, hef mótorleysi aftrar enn flughæfi.  Þannig er mál með vexti að tafir á afhendingu mótorsins valda því að verkinu gæti seinkað og þrátt fyrir góðan gang er ekki mikill tími aflögu.

Skv. Ágústi var reynt að hafa upp á mótornum allan daginn á undan en í lok dags náðist í umboðsaðila mótorframleiðandans á Spáni en svo virðist sem hann hafi ekki verið sendur af stað.  Hann hefur lofað að hann verði kominn til Torino kl. 9 eða kl. 13 í það síðasta á morgun (í dag þegar þessi orð eru rituð).  Því má vænta að mótorinn verði settur í strax á morgun.  Þetta verður því líkara spennusögu með hverjum deginum og við höldum áfram að fylgjast með og senda inn myndir.

verid_ad_tengja_styrifletinaVerið að tengja stýrifleti…