Framkvæmanefnd Hólmsheiðarflugvallar hélt upprifjunarfund 5. ágúst síðastliðinn. Nefndin setti sér það markmið að koma upp einu skýli á svæðinu í haust. Það þýðir að farið verður í jarðvegsframkvæmdir um leið og Skipulagsstofnun gefur grænt ljós…
Eftirtalið var rætt:
- Lauslega var farið yfir útistandandi tilboð í ný skýli.
- Nokkur ónotuð skýli standa eða liggja víðsvegar á landinu. Farið verður í að skoða hvort þau séu til sölu.
- Leita þarf tilboða í flutning á forsteyptum undirstöðum undir skýlin, sem félagið getur fengið gefins.
- Leita þarf tilboða í jarðvegsvinnu (ýta jarðvegi ofan af byggingasvæðinu og útbúa malarpúða undir skýlin).
Staðan á ýmsum málum:
- Búið er að auglýsa aðal- og deiliskipulagið fyrir Hólmsheiðina
- Athugasemdir við skipulagið eru komnar
- Rvk. borg er að útbúa svör til þeirra sem sendu inn athugasemdir
- Athugasemdir og svör frá Reykjavíkurborg verða væntanlega teknar fyrir á fundi 12. ágúst.
- Lokastimpill frá Skipulagsstofnun gæti komið 12. sept. ef allt gengur upp á eðlilegum hraða.