Aðalfundur Fisfélagsins í kvöld

Aðalfundur Fisfélags Reykjavíkur verður í kvöld, fimmtudagskvöldið 31. janúar 2013 að Grund við Úlfarsfell kl. 20:00. Fundardagskrá verður samkvæmt lögum félagsins.

Fundurinn er löglegur ef mættir eru eða hafa umboð 1/3 félagsmanna. Félagið hefur stækkað ört og telur nú um 142 félagsmenn því þarf amk. 48 félagsmenn (atkvæði) á aðalfundinn til að hann sé gildur og hægt að hefja hann.

Að loknum aðalfundarstörfum verður kosið í nefndir. Það er ómetanlegt tækifæri fyrir félagsmenn að leggja af mörkum í félagsstarfinu að taka að sér hlutverk í nefndum félagsins og eru sem flestir hvattir til að gefa kost á sér til starfa fyrir félagið.

Stjórnin hvetur alla til að mæta STUNDVÍSLEGA á aðalfund félagsins svo ekki þurfi að bíða með að hefja fundinn vegna skorts á mætingu.

Stjórnin