Hann er líflegur markaðurinn þessa dagana með fis en nú síðast bættist þar við ein af myndarlegri vélum fisflotans en það er Jora flugvél Hans á Sléttunni. Vélin sú er pólsk, plasttrefja og timburbyggð og afar rennileg að sjá. Vélin er með Rotax 582 tvígengismótor. Hún ber skráninguna TF-161. Hans auglýsir hana í Fréttablaðinu í dag í meðfylgjandi auglýsingu. Eins og sést þar er hægt að hafa samband við Hans á hans@internet.is
Nýlega var einnig auglýst ný Skyranger flugvél sem er í eigu Gústa formanns. Það sem gerir þá vél spennandi er að hún var smíðuð í Torino á Ítalíu af formanninum sjálfum og röskum hópi sjálfboðaliða og það á aðeins einni viku. Fylgst var með byggingu vélarinnar hér á vefnum í sumar. Vélin er SpeedWing útgáfa (eins og TF-150), er blá og hvít að lit og er búin hefðbundnum tækjum auk Rotax 582 mótors. Áhugasömum er bent á að hafa samband við ag@teigar.net.